Hafa samband

Sendu okkur línu Netfang: simamenn@simamenn.is
Sími: 580-5200
Fax: 580-5220
Fréttir


Kjarasamningur Fís við Símann og dótturfélög

Skrifað var undir kjarasamning við Símann og dótturfélög eftir hádegi í dag 14,10,2015

Innihald kjarasamningsins verður síðan kynnt á næstu dögum og fer kosning í gang í kjölfarið af því .

 

 

 
Staða kjarasamninga hjá Fís

Til upplýsinga fyrir félagsmenn í Fís sem falla undir kjarasamning Fís við Símann.

 

Kjarasamningurinn er við Símann, Mílu og dótturfélög Símans.  Samninganefnd hjá Fís hefur verið að vinna að því hörðum höndum undanfarna mánuði að gera nýjan kjarasamning við Símann, viðræður eru í gangi við Símann en ekki komin niðurstaða .  

Þegar samningur hefur verið undirritaður verður farið í kynningar og í kjölfar af því í kosningu, kosning stendur yfir í 10 daga. Það er því ljóst að við munum ekki klára þennan kjarasamning fyrir þessi mánaðarmót.

 

Baráttukveðjur frá samninganefnd Fís.

 

 
Kjarasamningur Fís við JÁ samþykktur

Kjarasamningur Fís við Já hefur verið samþykktur af félagsmönnum og var niðurstaðan 100%  já við samningnum.

Kjarasamningur var undirritaður 24. ágúst 2015 og gildir frá 1. maí 2015 og til 31. desember 2018

 

Innihald kjarasamnings í stuttu máli er eftirfarandi .

Laun hækka 1 maí ár hvert á meðan samningurinn heldur gildi sínu , samningurinn hefur forsenduákvæði sem innifelur meðal annar í sér að kaupmáttur launa hafi aukist, kjarasamningar hafi verið stefnumótandi og stjórnvaldsákvarðandi hafi fram. Hafi einhver forsenda ekki staðist þá getur annar hvor samningsaðilinn sagt kjarasamningum lausum eða leitað leiða til að stuðla að framgangi markmiða kjarasamnings

 

Launaþróum á samningstímanum.

      Laun hækka um 27.000.kr  1 maí 2015

       Laun hækka um 5.5% eða að lágmarki 15.000.kr 1 maí 2016

       Laun hækka um 4.5% 1 maí 2017

       Laun hækka um 3% 1 maí 2018

Lágmarkstekjutrygging verður 300.000 kr. 2018 og nær til Já hf þar sem við á.

 

Orlofsuppbót

       Á árinu 2015 kr. 42.000 (6,3% hækkun frá 2014)

       Á árinu 2016 kr. 44.500

       Á árinu 2017 kr. 46.500

       Á árinu 2018 kr. 48.000

 

Desemberuppbót

      Á árinu 2015 kr. 87.100 (6,1% hækkun frá 2014)

      Á árinu 2016 kr. 91.500

      Á árinu 2017 kr. 96.000

      Á árinu 2018 kr. 100.000

 

Heildarsamningur verði gefinn út eigi síðar en 1. nóvember 2015

   

 
Staða kjarasamninga hjá Fís

Í sumar hefur Fís verið í samningaviðræðum við Símann og við JÁ .

Undirritaður hefur verið kjarasamningur við JÁ og verður hann kynntur starfsmönnum föstudaginn 28 ágúst og fer í gang atkvæðagreiðsla í kjölfar fundarins . Eftir fundinn munum við kynna meginmál ný undirritaðs kjarasamnings .

 

Fís er enn viðræðum við Símann og ekki komin niðurstaða þar . 

 
Staða í kjarabaraáttu
Félag íslenzkra símamanna vill benda á í kjölfar fréttar á síðu Rafðinaðarsambands Íslands að okkar félagsmenn eru EKKI á leiðinni í verkfall eins og staðan er í dag heldur einungis þau félög sem upp eru talin í fréttartilkynningu á rafis.is
Við erum ekki komin á þann stað með okkar samning , markið okkar er að ná fram betri kjörum fyrir okkar félagsmenn og það eitt tekur tíma 
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 Næsta > Síðasta >>

Síða 6 af 8